Ég ek ekki út í óvissuna...
...ég ek á Subaru, eins og segir í auglýsingum frá Ingvari Helgasyni hf. En ég var einmitt að festa kaup á glæsivagni, Subaru Legacy 1800 GL. Eftir að hafa fylgst með bílasölum borgarinnar í nokkurn tíma fann ég ágætt eintak og ákvað að láta hann ekki ganga mér úr greipum. Upphaflega var ég samt að leita að gömlum Mercedes Benz - kannski frá '82 - og hafði ætlað að finna einn lítið ryðgaðan skrjóð. Mér fannst þeir svo flottir þegar ég var lítill, og finnst það enn ef þeir eru ekki illa farnir. En að lokum féllst ég á það að afturhjóladrifinn bíll væri slæmur kostur í hálku. Hver nennir að aka um með sandpoka í skottinu? Subaru þekki ég hins vegar og það get ég sagt ykkur að þessir bílar komast allt. Ég get ekki sagt að ég sjái eftir vali mínu.

