Sapere Aude!

13.9.05

Lost

Valgerður hefur ánetjast þáttunum Lost og hefur nú náð að koma mér upp á bragðið með þessa þætti líka. Ég var nú ekkert spenntur fyrir þessu í fyrstu og hefði í raun getað hætt að horfa bæði eftir fyrsta þáttinn og annan þáttinn en þetta eru svo sem ágætir þættir. Þetta er auðvitað ekki í sama klassa og 24! Ég get varla beðið eftir að fjórða serían af 24 komi út á dvd; ég hef ekki séð einn einasta þátt úr henni. Það verður 24 tíma maraþon gláp þegar serían kemur loksins út.

Það eru komnar fleiri myndir á vefinn ef einhver skyldi nú hafa áhuga á að sjá brot úr ferðalagi okkar til Washington.

4 Comments:

  • Þú ert svo klikkaður, viðurkenndu það bara þú ert alveg jafnháður þeim og ég ef ekki háðari!

    By Blogger Valla, at 5:14 f.h.  

  • Nei, það viðurkenni ég ekki.

    By Blogger Geir, at 5:18 f.h.  

  • aldrei reyna að fá Geir til að viðurkenna neitt.
    alveg eins hægt að kenna nauti að prjóna sokka lista fyrir jólin

    By Anonymous Nafnlaus, at 4:21 e.h.  

  • Haha rétt Andri, held ég reyni frekar að kenna nautinu ;)

    By Blogger Valla, at 4:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home