Sapere Aude!

23.5.06

Spádómsgáfan

Það er kominn tími til að leggja mat á spádómsgáfu mína aðeins. Ég spáði því að Miami myndi mæta Detroit í undanúrslitum austurdeildarinnar og hafði rétt fyrir mér um það. Síðan spáði ég því að annaðhvort L.A. Lakers eða Phoenix myndi komast í undanúrslit vesturdeildarinnar en taldi Phoenix líklegra liðið. Phoenix sigraði fyrst Lakers og svo L.A. Clippers og er komið í undanúrslitin. Þar hélt ég að San Antonio myndi svo vinna þá en San Antonio komst raunar ekki áfram þannig að Phoenix mætir Dallas í staðinn. Þess má geta að Dallas liðið hefur leikið mun betur en ég átti von á (hef ekki fylgst með þeim að ráði síðan í úrslitakepninni í fyrra).

Sem sagt, fjögur sæti til að skipa, ég náði þremur en eiginlega bara tveimur og hálfu fyrst ég hafði fyrirvara á að Phoenix kæmist áfram. En hvað nú? Í raun gæti þetta farið á hvern veg sem er en ég ætla að standa við spá mína (og von) um að Miami komist áfram í austurdeildinni. Bæði liðin í vesturdeildinni eru skemmtileg lið og ég þori eiginlega ekki að spá fyrir um hvort þeirra kemst áfram.

Það hafa ekki allir jafngaman af því að velta fyrir sér úrslitakeppninni í NBA deildinni. Ykkur hinum býð ég upp á eftirfarandi pælingu: Ég hafði haldið því fram að San Antonio, Miami og Detroit kæmust áfram í undanúrslitin áður en ljóst var að Miami og Detroit kæmust áfram en San Antonio yrði slegið út. Spurningin er núna, sagði ég satt um gengi Miami og Detroit liðanna þegar ég sagði þetta? Og sagði ég ósatt um gengi San Antonio þegar ég sagði að liðið kæmist áfram? Veltið þessu aðeins fyrir ykkur.

3 Comments:

  • Ég hef verið að horfa á How clean is your house og það er á hreinu að við fáum okkur aldrei teppi og verðum helst að eiga breska konu sem skammar mig þegar ég drasla til.

    By Blogger Valla, at 8:30 e.h.  

  • Ég held að knattspyrna sé málið.

    By Anonymous Nafnlaus, at 7:47 e.h.  

  • Ég held að knattspyrna sé ekki málið.

    By Blogger Geir, at 2:44 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home