Útúrsnúningur
Í viðtali í dag var Geir Haarde spurður hvort það væri ekki óhjákvæmilegt að kjósa í vor en hann var aldeilis ekki á þeim buxunum af því að (i) "við erum núna í miðju kafi í efnahagssamstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og það er mjög mikilvægt að það samstarf haldi áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið" og (ii) "það verði ekki stjórnlaust landið því þá gerist ekki neitt."
Já, munu sem sagt lýðræðislegar kosningar leiða til stjórnleysis? Eða jafngildir kannski stjórn án Sjálfstæðisflokksins stjórnleysi? Hann hefur aldeilis tröllatrú á lýðræðinu, maðurinn!
Það er með ólíkindum að forsætisráðherra landsins vogi sér að bjóða landsmönnum upp á svona útúrsnúning og þvætting. Fólk biður um kosningar, fólk vill kjósa sér nýja stjórn. Allt tal um hættur stjórnleysis er út í hött.
Mér finnst Geir Haarde því miður vera allt of oft með svona útúrsnúninga. Það er reyndar ekki við öðru að búast af stjórnmálamanni en að hann snúi stundum pínulítið út úr og allt í lagi með það svo sem en mér finnst eiginlega eins og maðurinn geri aldrei neitt annað en að snúa út úr. Hann talar við þjóðina eins og hún sé fífl. En mér finnst hann vera fífl og mig grunar að ég sé ekki einn um þá skoðun.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home