Sapere Aude!

29.4.09

Svínaflensa

Fyrir þá sem ekki hafa séð kvikmyndina Outbreak, þá er kjörið að gera það núna.

Merkilegt annars að fólk skuli nenna að rífast um hvað á að kalla flensuna. Aðstoðarheilbrigðisráðherra Ísraels, Yakov Litzman, sagði til dæmis að flensan ætti frekar að heita Mexíkóflensan af því að gyðingar og múslimar hafa lítið álit á svínum, svín eru móðgandi. Flensur eru oftast nefndar eftir uppruna sínum (Asíuflensan, Hong Kong-flensan, fuglaflensa o.s.frv.) og hvar svo sem fyrsti sjúklingurinn var virðist uppruni þessa faraldurs vera í Mexíkó. En það er samt ekki heil brú í þessum málflutningi. Það er alveg ljóst að veiran á sér uppruna í svínum og úr því að nafnið svínaflensa er núna víðast í notkun er allt í lagi að halda sig bara við það. Það er líka alveg út í hött að þurfa að taka tillit til einhverra trúarbragða um svona hluti. Nafn þessarar flensu hefur ekkert með íslam eða gyðingdóm að gera og gerir ekki lítið úr þeim. Þeir verða að eiga það við sjálfa sig ef svín fara í taugarnar á þeim og þar með nafnið á flensunni. Eða ætti kannski að vera bannað að tala um svín almennt af því að það særir blygðunarkennd einhverra trúarplebba? Ætti Svínaflói á Kúbu að heita eitthvað annað (kannski Kennedy-flói?)

Annars er þetta eiginlega fáránlegt líka: Það er áríðandi að við hættum öll að tala um svínaflensu og tökum upp eitthvert annað nafn á pestinni til að vernda svínakjötsframleiðslu í Bandaríkjunum! Af hverju ættu bandarískir embættismenn að ráða því hvað þessi faraldur heitir? Því miður, flensan heitir svínaflensa.

En fyrst ég minntist á trúarviðhorf, þá væri gaman (eða kannski skelfilegt) að heyra hvað þeir sem aðhyllast vitræna hönnun segja um svona faraldur. Þróunarkenningin getur útskýrt stökkbreytingar og útbreiðslu veirunnar án vandræða og án undarlegra siðfræðilegra afleiðinga. En þeir sem halda að guð "stýri" þróun tegundanna einhvern veginn hljóta þá að halda að það sé guð sem ber ábyrgð á því að veiran stökkbreyttist og barst úr svíni í mann sem smitaði síðan aðra og varð nokkrum að bana, m.a. rétt tæplega tveggja ára gömlu mexíkósku barni sem lést í Texas. Hvað hafði guð á móti barninu? Hann var kannski bara að minna á sig ("Sjá ég boða yður mikinn fögnuð" o.s.frv.) enda langt síðan sést hefur til hans. Ég meina, fólk gæti hafað hætt að trúa...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home