Sapere Aude!

29.1.03

Sigur Íslendinga gegn Pólverjum

Leiknum gegn Póllandi er lokið og Íslendingar báru sigur úr býtum með 33 mörkum gegn 29 eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik (14:17). Þrátt fyrir nokkrar slæmar sendingar og smávægileg mistök verður að segjast að íslenska liðið lék mjög vel, fór ekki á taugum þótt þeir lentu nokkrum mörkum undir, heldur héldu þeir áfram að berjast og áttu mjög góðan seinni hálfleik. Dagur Sigurðsson lék frábærlega og einnig Patrekur og er það ánægjulegt, því þessir menn þurfa að finna sig til þess að liðið geti náð lengra í kepnninni því engir auðveldir leikir eru lengur eftir. Nú er að duga eða drepast.