Sapere Aude!

26.2.03

Íslenskar gæsalappir, nei takk!

Hvers vegna þurfa Íslendingar að hafa sértök íslensk tilvitnunarmerki eða svokallaðar gæsalappir? Er ekki óþarft vesen að leggja sig fram um að hafa gæsalappir niðri í upphafi tilvitnunar en uppi í lok hennar? Hvers vegna ekki bara að hafa þær alltaf uppi? Það er óneitanlega minna vesen. Mæla einhver málverndarsjónarmið gegn því að þessum séríslensku tilvitnanamerkjum verði kastað fyrir róða? Ég kem í það minnsta ekki auga á þau og legg þess vegna til að hætt verði að nota séríslensk tilvitnanamerki. Ég nenni alla vega ekki að nota þau og geri það ekki.