Sapere Aude!

30.1.03

Vonbrigði

Úrslit leiksins í dag, sem lauk reyndar aðeins fyrir örfáum mínútum, eru mikil vonbrigði fyrir Íslendinga, en Spánverjar sigruðu með einu marki og munu því blanda sér í baráttuna um 1.-4. sæti á HM í handknattleik í Portúgal. Íslendingar munu aftur á móti spila um 5.-8. sæti og geta enn náð að vinna sér rétt til þátttöku á ólympíuleikunum í Aþenu á næsta ári. Íslenska liðið spilaði ekki sérlega vel í leiknum (a.m.k. ekki sem lið) og átti eiginlega ekki skilið að vinna. Leikmenn íslenska liðsins gerðu allnokkur mistök, misnotuðu tvö eða þrjú dauðafæri (m.a. þegar nokkrar sekúndur voru til loka fyrri hálfleiks, staðan 18:18 og markmaður Spánverja var ekki í markinu), fengu dæmd á sig skref og áttu fjórar eða fimm slæmar sendingar í röð í seinni hálfleik, sem Spánverjar refsuðu fyrir með því að auka muninn. Það var eins og liðið hefði brotnað saman og enginn hafði kjark til að taka af skarið. Að vísu þykir nokkuð gott að skora tvö mörk tveimur leikmönnum færri, og átti Einar Örn Jónsson ekki minnstan þátt í því en hann skoraði bæði mörkin úr horninu. En það er ekki nóg. Ólafur Stefánsson og Dagur Sigurðsson hrukku allhressilega í gang þegar tæpar tvær mínútur voru eftir og Íslendingar þremur mörkum undir. En það var of seint. Spænska liðið lék betur, vörn þeirra small betur saman, markmaðurinn varði betur en Eradse (sem varði þó á nokkrum afar mikilvægum augnablikum), Dujshebaev gat skorað þegar honum datt í hug og oft á ótrúlegan og undraverðan hátt og skilaði það sér allt á endanum.

Það er því ljóst að Spánverjar munu berjast við Króata, Frakka og Þjóðverja um 1.-4. sætið. Held ég þá með Þjóðverjum sem ég tel vera sigurstranglegasta liðið. Íslendingar mæta hins vegar Rússum næst á laugardag og svo annað hvort Ungverjum eða Júgóslövum.