Sapere Aude!

30.1.03

Skyldi ég vera bókaóður?

Ég er búinn að fá staðfestingu á því að ég sé búinn að panta of mikið af bókum hjá Bóksölu stúdenta undanfarið. Fékkst hún með þeim hætti að ég lagði leið mína í Bóksöluna í dag, þar eð ég hafði fengið tilkynningu um það að bókin Hellenistic Sculpture, sem ég pantaði, væri komin, og þegar ég var kominn að afgreiðsluborðinu segir stúlkan við mig "Sæll! Ertu að sækja bókina þína?". Ég verð að játa að þetta setti mig svolítið út af laginu. En ég þarf sem sagt ekki lengur að láta vita hvaða bók ég er að sækja heldur þekkja þau mig orðið með nafni og muna hvaða bækur ég á pantaðar. En allt í lagi, ég játa það, bókapantanir hafa verið í meira lagi undanfarið og ég fer nú að taka því rólega í bókapöntunum núna. Með því er ég auðvitað ekki að segja að ég neiti mér um að líta við í bókabúð í Kaupmannahöfn þegar ég fer þangað í maí eða að ég panti ekki örfáar bækur í haust þegar að seinni B.A.-ritgerðinni kemur. En í bili held ég að ég láti gott heita og leyfi bara þessum 5 sem eiga eftir að koma að koma.