Sapere Aude!

25.3.03

Akstur á vinstri akrein

Það fer í taugarnar á mörgum að lenda aftan við einhvern sem ekur hægt á vinstri akrein. Stundum er þeirri reglu nefnilega haldið fram að vinstri akrein sé fyrir þá sem vilja aka hraðar. Og það má til sanns vegar færa að þessi regla er til. Ég hef aftur á móti efasemdir um að hún gildi á Íslandi.

Lítum til dæmis á götur eins og Hringbrautina, Miklubrautina eða Sæbrautina í Reykjavík. Eflaust heldur því einhver fram að vinstri akrein sé þar ætluð þeim sem aka vilja hraðar. Þess vegna eigi menn ekki að hanga á vinstri akrein ætli þeir hvort eð er að aka jafnhratt og þeir sem aka á hægri akrein. En mér finnst það hins vegar undarleg hugmynd, vægast sagt, já reyndar fráleit, að vinstri akrein sé til þess að geta ekið hraðar fram að næstu umferðarljósum, nú eða næsta hringtorgi, en sjaldnast er lengra á milli ljósa en einn eða tveir kílómetrar. Það er engu líkara en að menn haldi að þetta séu einhverjar hraðbrautir. En það er auðvitað ekki. Þarna eru vitaskuld tvær akreinar (stundum þrjár) vegna þess að umferðin er stundum það mikil að annað er einfaldlega ekki hægt. Þessi vinstri akrein er þarna vegna umferðarþunga en ekki til þess að einhver kjáni geti þóst vera á hraðbraut. Nú, en þess ber að geta að það eru mjög fáir staðir hér á landi þar sem eru tvær akreinar (eða fleiri) í hvora átt en engin umferðarljós, hringtorg eða neitt slíkt strax í eins eða tveggja kílómetra fjarlægð. Einn slíkur spotti liggur þó frá ljósunum á Kringlumýrarbraut og Miklubraut í Reykjavík og alla leið suður í Garðabæ. Þar er rétt rúmlega 5 km langur ljósalaus spotti. Kannski vinstri akreinin sé þar ætluð hraðaakstri? Nei, það held ég ekki. Því staðreyndin er sú að þarna aka svo að segja allir og á öllum akreinum á 90 km hraða ef ekki hraðar. En hámarkshraði þarna er 70 km/klst. Þess vegna er ekki hægt að ætlast til þess að maður á vinstri akrein aki hraðar bara af því að maður vill sjálfur fara hraðar. Þvert á móti. Það eiga einmitt allir að hægja á sér. Þess vegna held ég að þessi regla eigi ekki við á Íslandi; það er engin hraðbraut hérna.

Ég vil taka það fram að ég er ekki að mæla með því að fólk hangi alltaf á vinstri akrein, til dæmis þegar umferð er lítil. Ef einhver jólasveinn kemur á fleygiferð og þarf endilega að taka fram úr manni, þá er betra að hann geri það vinstra megin en hægra megin. Ég held bara að þessi regla hafi orðið til við aðrar aðstæður en hér er að finna. En tilgangurinn með því að hafa fleiri en eina akrein þar sem sú er raunin hér á landi er alls ekki sá að sumir eigi að geta ekið hraðar, heldur eru sums staðar fleiri akreinar vegna þess að stundum er umferðarþungi of mikill fyrir eina akrein. Þessi regla á almennt ekki við innanbæjar, þar sem eru umferðarljós, hringtorg og fleira, og hún á ekki við þar sem allir aka 20-30 km yfir hámarkshraða - á báðum akreinum. Öðru nær, þar eiga bara allir að hægja á sér. Og ég held að okkur Íslendingum veiti ekkert af því að hægja aðeins á okkur.