Fregnir, slúður og fleira
Það gleður mig að geta sagt frá því á þessum ljómandi góða degi að ég hafi komist inn í Rutgers. Fékk bréf þess efnis í dag. Þá er ljóst að ég komst alls staðar inn nema í Harvard og munaði þó mjóu þar. Heyrði slúður um það í gær að deilt hefði verið um mig í Boylston Hall og Emerson Hall. Að því er virðist vildi Gisela Striker fá mig inn en fékk ekki sínu fram. Það breytir þó engu núna, og ekki heldur tilboðið frá Rutgers þótt gott verði að teljast. Ég er alveg ákveðinn í að fara annað hvort til Cornell eða Princeton og er jafnvel farinn að hallast frekar að Cornell. Ég má ekki láta snobbið ná tökum á mér. Auk þess er bókmenntaarmurinn í klassíkurdeildinni í Princeton kannski full pómó fyrir mig. Það má eiginlega segja að ég sé "pómófób".

