Eins og hendi væri veifað
Nú er orðið kalt, nú er komið frost. Haustinu lauk fyrir þremur dögum eða svo. Veturinn er skollinn á. Og þótt ótrúleg sé er um 14 gráðum heitara heima á fróni en hér þessa stundina - þótt ég sé jafnsunnarlega á hnettinum og Barcelona! Hér er 11 gráðu frost. Ég man ekki eftir svona köldum degi í Reykjavík í háa herrans tíð. En nú kem ég heim á morgun. Það verður indælt að koma norður í hitabylgjuna yfir hátíðirnar. Jólamaturinn verður ágæt tilbreyting frá mötuneytisbjakkinu hérna. Það er ekkert grín að vera svín og vera étinn á jólunum. Ég ætla að reyna að fitna þessi jól.


1 Comments:
Afsakaðu svekkið, en það á víst að koma Síberíufrost þann 23 og jafnvel fyrr. Frá mínus tíu til tuttugu! Þetta verður æ svo gaman og hátíðlegt. Ég held ég muni nú bara eftir u.þ.b. mínus þrettán í Reykjavík; alltaf gaman að reyna eitthvað nýtt.
By
Arnþór L. Arnarson, at 4:14 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home