Laus allra mála ...bráðum ...vonandi
Nú er próf í grískum bókmenntum að baki (það var reyndar á þriðjudaginn en hvað með það þótt ég sé latur að blogga; mér leiðist bara leti - og lestir - annarra manna). Feginn er ég að vera laus við það. Hefði svo sem getað gengið betur þar sem ég var fremur óheppinn og hafði náð að lesa fæst af því sem kom, en það þýðir ekki að væla úr þessu! Vona bara að hann felli mig ekki. Nú þarf ég að bara að klára ritgerð (helst í gær en ég er ekki í slæmum málum fyrr en um helgina!) og þá er ég kominn í vikufrí eða svo og verð laus allra mála frá liðinni önn.
Planið er síðan að verðlauna sjálfan mig á morgun eftir að ég skila ritgerðinni með því að koma við í bókabúð Princeton Theological Seminary sem er guðfræðiskóli hér í bænum. Bókabúðinn þeirra hefur víst þokkalegt úrval af bókum í bæði fornfræði og heimspeki og mér er sagt að bækurnar séu meira að segja niðurgreiddar í sumum tilfellum. Í dag fann ég líka Witherspoon Books, loksins, sem er fornbókabúð hér í bænum. Búðin er falin í kjallaraholu á Nassau Street en ég hafði alltaf reynt að taka eftir henni á Witherspoon Street (hvers vegna skyldi það nú vera?) Þeir hafa nú ekkert svakalegt úrval bóka í mínum fræðum en þó þess virði að líta þar við. Annars skilst mér að verslunin loki einhvern tímann fyrir eða um sumarið. Hver veit nema þeir verði þá með útsölu.

7 Comments:
Ekki eyða öllum peningunum :)
By
Valla, at 1:34 f.h.
Ég eyddi ekkert svo miklu :)
By
Geir, at 10:27 e.h.
Ekki gera eins og mamma þín segir Jens!!
Eyddu öllum peningunum þínum! ;)
By
Arnþór L. Arnarson, at 7:24 e.h.
Tharftu ekki ad senda í gámi heim á endanum?
By
Alma, at 4:02 e.h.
Hann gefur bara Princetonbókasafninu þetta allt þegar hann fer.
By
Valla, at 10:06 e.h.
Ertu sturluð, kona? Gefa bækurnar mínar? Þú ert vitstola. Já, og svei mér þá ef þú ert ekki bara rauð á brjóstunum líka, eins og Kristján Jóhansson hefði sagt! Haha...
Nei, auðvitað sendi ég þetta heim í gámi.
By
Geir, at 10:15 e.h.

Skrifa ummæli
<< Home