Klukk
Það er einhver stórundarlegur "bloggleikur" í gangi sem gengur út á að klukka aðra bloggara og þegar maður er klukkaður á maður að skrifa fimm tilgangslausa hluti um sjálfan sig og klukka svo þrjá aðra. Og nú hef ég verið klukkaður. Ég vil að sjálfsögðu ekki vera félagsskítur þannig að hér eru fimm tilgangslausar staðreyndir um mig:
1. Ég er latur og ég nenni ekki að raka mig oftar en tvisvar í viku í mesta lagi en oft líður mun lengra á milli.
2. Mér leiðist að gefa þjórfé. Ekki að ég geti ekki séð af þeim peningi sem fer til þjónustufólksins, ég nenni bara aldrei að reikna út eðlilegt og sanngjarnt þjórfé og mér finnst að ég eigi ekki að þurfa að vera að því (I'm the goddamn customer...).
3. Ég er haldinn fordómum í garð fólks í Comparative Literature sem sér reðurtákn úti um allt (sem mér finnst segja meira um það sjálft en textana sem það les) og heldur að það séu rittengsl á milli 4. bókar Eneasarkviðu Virgils og Antígónu Sófóklesar af því að í báðum verkum eru tvær systur að tala saman (eins og það sé eitthvert bókmenntaminni).
4. Ég átti einu sinni hund og ég ætla að fá mér hund aftur... einhvern tímann (vonandi sem fyrst).
5. Mér leiðist ekki að vaska upp; þvert á móti finnst mér það afslappandi.
Þannig var nú það. Nú "klukka" ég heimspekingana Elmar Geir Unnsteinsson, Gunnar Sigvaldason og Hrafn Ásgeirsson (enda mættu þeir allir vera duglegri að blogga).

5 Comments:
Það er víst mjög græðandi að þrífa líka :D Bara svona upp á framtíðina ;)
By
Valla, at 2:02 f.h.
Ég er eiginlega alveg sammála þér með uppvaskið. Segi þó ekki að ég hoppi hæð mína af kæti þegar ég sé stóra stafla í eldhúsinu en svona þegar ég er byrjuð þá finnst mér það bara alveg ágætt.
By
Alma, at 8:40 f.h.
Blessaður Geir Th!! Gaman að sjá frá þér kveðjuna á síðu stubbsins. Mátti til með að segja þér það að ég var hér í "heimsókn" hjá þér bara í fyrradag eftir að hafa enduruppgötvað þessa glæsilegu síðu þína og hlýt að hafa sent þér svona svakalega sterkt hugskeyti fyrst að þú rekst svo á síðu Garps strax daginn eftir. Gaman að þessu... Verð héðan í frá fastagestur hér hjá þér just so you know!
Kærar kveðjur til þín og Völlu, Hlín og co.
By
Nafnlaus, at 8:12 f.h.
Já, auðvitað, Hlín, að sjálfsögðu varst það þú sem googlaðir "Geir Þórarinn Þórarinsson" í Google.de ;)
By
Geir, at 1:27 e.h.
Oh Geir!! Gastu ekki bara leyft mér að trúa áfram á gríðarlega sterka hugskeyta-sendingar-hæfileikann minn??:-) he he...
Er núna búin að setja síðuna þína í favorites hjá mér svo að þú verður ekki gúgglaður frá Germany aftur í bráð, ja allavega ekki af mér!!
Hafðu það gott, kveðja, Hlín
By
Nafnlaus, at 5:27 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home