Sapere Aude!

4.7.06

Prinsabær

Jæja, ég er kominn aftur til Princeton, í hitann og rakann. Ferðalagið var langt og leiðinlegt. Fyrst seinkaði vélinni og svo var Kennedy flugvelli lokað vegna þrumuveðurs og við urðum að lenda einhvers staðar úti í buska til að taka eldsneyti og bíða eftir að þrumuveðrið gengi yfir. Ég átti að lenda klukkan sjö í New York og vera kominn heim fyrir miðnætti en um hálf tólf var ég enn þá í leigubílaröðinni á JFK. Munaði ekki miklu að ég myndi missa af lestinni (og raunar missti ég af lestinni því þegar ég kom til Princeton Junction um tíu mínútur í tvö var síðasta lestin til Princeton löngu farin). Ég varð sem sagt að taka leigubíl inn í bæ og fá svo háskólalögguna til að keyra mig heim og hleypa mér inn, sem hún gerði að sjálfsögðu.

Gærdagurinn fór svo í alls kyns reddingar og stúss. Í dag er hins vegar 4. júlí og allt lokað, nema reyndar matvörubúðin. Ætli ég kaupi þá ekki í matinn.

2 Comments:

  • Svo endaðiru bara á því að kaupa þér húsgögn!

    By Blogger Valla, at 9:10 e.h.  

  • Jæja kall, bara minna á að til að ná að blogga mánaðarlega þarft þú að blogga í dag eða á morgun.

    By Blogger Valla, at 9:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home