Sapere Aude!

21.1.09

Áskorun til forseta

Í stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands segir:

"24. gr. Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, [áður en 45 dagar eru liðnir frá því er gert var kunnugt um þingrofið], enda komi Alþingi saman eigi síðar en [tíu vikum] eftir, að það var rofið. [Alþingismenn skulu halda umboði sínu til kjördags.]"

Hvernig væri að skora á forsetann að rjúfa þing svo að hægt sé að kjósa upp á nýtt? Safna undirskriftum í stað þess að standa úti í kuldanum?

Forsetinn hefur áður látið reyna á stjórnarskrárbundið vald sitt þegar gjá hefur myndast milli "þingvilja og þjóðarvilja" eins og hann orðaði það sjálfur. Ef slík gjá er ekki að myndast núna, þá veit ég ekki hvað.

Viðbót:
Ég tók eftir því eftir að ég skrifaði þessa færslu að aðrir hafa fengið sömu hugmynd. Til dæmis er búið að stofna Fésbókargrúppu um hugmyndina og setja upp undirskriftarlista á netinu. Hann má nálgast hér ef einhver skyldi hafa áhuga.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home