Flutningar
Ég hata að flytja. Reyndar ekki ef ég er að hjálpa öðrum að flytja en ég þoli ekki að flytja sjálfur. Það er ömurlegt; allt of mikið vesen. Nú stöndum við Valla einmitt í flutningum og eigum að losa gömlu íbúðina í dag. Megnið af draslinu okkar (og hvernig varð eiginlega svona mikið af því?) er reyndar komið í nýju íbúðina en er mest allt í kössum enn þá og skipulagið er nákvæmlega ekkert. Sem betur fer eigum við góða að því að án Ragnheiðar og Jomma hefðum við sennilega bara ekki náð þessu. Það er til dæmis ekki séns í helvíti að við Valla hefðum getað komið sjónvarpinu upp á aðra hæð ein tvö saman. Við Jommi hefðum sennilega átt í erfiðleikum með það einir tveir líka - þótt hann hafi sýnt það rækilega, drengurinn, að hann er fílhraustur. En með þeirra hjálp gátum við fyllt U-Haul-trukkinn tvisvar og náðum að flytja húsgögnin öll á laugardaginn. Sem betur fer var ekki til sendibíllinn sem við báðum um en í staðinn fengum við trukk; en svo var annað fólk í sömu stöðu sem hefði þurft að taka enn þá stærri trukk en vildi hann ekki svo að við fengum hann í staðinn. Ég er eiginlega viss um að ég hafi ekki leyfi til að keyra svona stóran trukk en gerði það nú samt og allt gekk vel. Við hefðum líka átt erfitt með að koma sófanum út án Jomma en sá hlunkur var skilinn eftir við ruslagáminn (reyndar ekki lengi því einhverjir nágrannar okkar ákváðu að taka hann innan 5 mínútna frá því að við skildum við hann).
Nýja íbúðin er alla vega stærri og bjartari og með uppþvottavél! (Fuckin' A!)
Nýja íbúðin er alla vega stærri og bjartari og með uppþvottavél! (Fuckin' A!)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home