Óeirðir í Írak
Nú er orðið ljóst að stjórn Saddams Husseins er fallin og segja má að í Írak ríki stjórnleysi þessa stundina. Eitt af því sem á sér stað þar í landi, nú eftir að Saddam er ekki lengur við stjórn, eru óeirðir og mikil aukning glæpa, en ef eitthvað er að marka fréttir sem þaðan berast virðist sem íbúar Íraks taki nú ófrjálsri hendi hvaðeina sem þeir geta borið. Þeir hafa bókstaflega rifið í sundur hótel, sjúkrahús og opinberar byggingar en láta einnig greipar sópa í verslunum hverjir hjá öðrum og þar fram eftir götunum. Það sem mér finnst hins vegar merkilegt er að stundum virðist sem Bandaríkjamönnum og Bretum sé hálfpartinn kennt um þetta ástand. Það finnst mér fullkomlega óskiljanlegt. Íbúar Íraks eru að ræna hverjir aðra. Hvernig getur það verið einhverjum öðrum að kenna? Þeir bera sjálfir ábyrgð á gjörðum sínum. Bandaríkjamenn og Bretar koma þangað og losa landið við harðstjórann Saddam en það er fólkið í landinu sem hefur ákveðið að fara ekki lengur eftir lögum og virða til dæmis ekki lengur eignarétt. Og reyndar er það merkilegt að fólk skuli haga sér svona þegar það hefur loksins fengið tækifæri til að skapa það þjóðfélag sem það vill sjálft búa í; íbúar Íraks gripu tækifærið og vörpuðu fyrir róða lögum og reglu.

