Árni Johnsen og þjóðhátíð í Eyjum
Framundan er þjóðhátíð í Eyjum þar sem Árni Johnsen hefur árum saman stjórnað brekkusöng og vilja þeir sem fyrir hátíðinni standa gjarnan fá Árna til að stjórna söngnum enn á ný. Og að sjálfsögðu vill Árni sjálfur skreppa á þjóðhátíð enda ósennilegt að hans bíði eitthvað skemmtilegra á Kvíabryggju þessa helgi. Þannig að hann hefur sótt um helgarleyfi til þess að fá að fara til Vestmannaeyja um helgina og stjórna þar brekkusöng. Síðan heldur maðurinn því fram að verði honum neitað um það, þá sé verið að beita hann einhverju ranglæti og harðræði og að það sé engin ástæða til þess að hann ætti ekki að fá að fara. Ég verð aftur á móti að segja að ef fangelsisyfirvöld, eða dómsmálaráðuneytið, fallast á að Árni megi fara að djamma í Eyjum um helgina, þá er það hneyksli. Það er ofureinföld ástæða til þess að Árni eigi ekki að fá að fara til Eyja: Hann var dæmdur í fangelsi. Til hvers er annars verið að dæma menn til fangelsisvistar ef þeim skal síðan hleypt út til að fara að skemmta sér á þjóðhátíð? Skiptir það einhverju máli að Árni hefur farið á þessa blessuðu þjóðhátíð árum saman? Hvers vegna ætti hann frekar að fá að fara að skemmta sér í Eyjum en aðrir fangar sem hafa ef til vill aðeins farið tvisvar eða þrisvar á þjóðhátíð í Eyjum, eða jafnvel aldrei? Það væri nú bara dæmigerður íslenskur farsi ef öllum föngum yrði hleypt út um verslunarmannahelgina svo að þeir missi nú ekki af djamminu. Það breytir vitaskuld engu um þetta hvort mönnum þykir dómurinn í máli Árna hafa verið of þungur eða ekki (sumir telja að ef Árni hefði ekki verið þekktur maður, þá hefði hann ekki fengið eins þungan dóm og hann fékk). Dómurinn er eins og hann er og Árni á auðvitað að afplána hann en ekki fara út að tjútta af því að hann langar svo ofsalega mikið að fara einu sinni enn á þjóðhátíð í Eyjum. Hann hefði átt að hugsa til þess áður en hann framdi glæpinn að þeir sem sitja inni fyrir glæpi sína missa kannski af ýmsu sem þeir hefðu viljað taka þátt í. Þessi umræða öll er fáránleg.

