Elkó
...fær hrós í dag. Þeir minnkuðu loksins helvítis Elkóblaðið. Reyndar tók ég eftir þessu í gær eða fyrradag en hvað um það. Nú er bara hægt að fletta þessu blaði. Það var ekki hægt áður. Það var allt of stórt til þess. Hvers vegna þurftu þeir alltaf að sýna hvern einasta ísskáp í raunstærð? Ég efast um að þeir hafi selt fleiri ísskápa vegna þess. En batnandi mönnum er best að lifa.

