Sapere Aude!

24.5.04

Ég kom, ég sá...

... ég keypti bækur. Ætli þetta lýsi ekki vel Lundúnaferðinni að þessu sinni? Einu sinni keypti ég ekkert nema plötur (og hafði jafnvel meiri pening til þess) en ekki nema einstaka bók um sagnfræði hjá Foyles. Í þetta sinn fór allur peningurinn í bækur um klassík og heimspeki og hver einasta bókabúð þefuð uppi: Foyles, Borders, Blackwells, Waterstones, Books Etc., ýmsar fornbókabúðir á Charing Cross Road. Vesalings Valgerður lét sig hafa það að hlaupa með mér í hverja einustu bókabúð í Central London og kvartaði ekki... jah, a.m.k. fyrr en ég var farinn í þriðja sinn inn í Foyles. En það er vart hægt að lá henni það.

Hér er annað "kontrast": Einu sinni fór ég skemmtistaði á kvöldin (The End, Plastic People, Ministry of Sound...); í þetta sinn vöknuðum við snemma til að skoða helstu túristagildrur og söfn (Big Ben, Westminster Abbey, House of Parliament, Trafalgar Square, Museum of Natural History, British Museum, The Wallace Collection...) og fórum í leikhús á kvöldin. Ég sem hef komið oftar en einu sinni til London áður hafði aldrei séð suma af þessum túristastöðum. Gaman líka að upplifa breska leikhússtemningu. Hún er frábrugðin íslenskri.

Veðrið lék sem betur fer við okkur. Í raun fengum við of mikið af því góða því Helíos gerði sér lítið fyrir og brenndi okkur Valgerði þannig að nú erum við rauð í framan eins og skrælingjar. Okkur hefði ekki veitt af smá sólarvörn. Að vísu rigndi einn daginn en við vorum inni á British Museum þann daginn og urðum því lítið vör við það.

En ferðin var vel heppnuð að mestu leyti ef frá er talið týnt kreditkort (sem við náðum að vísu að stoppa í tæka tíð) og aumir fætur eftir mikla göngu innandyra sem utan.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home