Fréttablaðið
Já, blessað Fréttablaðið er nú meira ruslið. Á forsíðu blaðsins í dag segir að ríflega 77% þjóðarinnar séu á móti fjölmiðlafrumvarpinu - Hafið ekki áhyggjur, ég er ekki að fara að tala um þetta frumvarp - og þetta segir ekki aðeins í fyrirsögninni heldur í fréttinni sjálfri, ríflega 77% þjóðarinnar eru andsnúin fjölmiðlafrumvarpinu. Seinna í greininni kemur svo fram að 23% úrtaksins hafi annað hvort verið óákveðin eða neitað að svara. Skoðum þetta aðeins betur. Úrtakið var 800 manns. 23% voru óákveðin eða neituðu að svara, en ríflega 77% þeirra sem sem tóku afstöðu voru mótfallin frumvarpinu. En 77% af þeim 77% sem tóku afstöðu eru ekki nema rétt tæplega 60% alls úrtaksins. Sem sagt: starfsmenn Fréttablaðsins spurðu 800 manns um afstöðu þeirra til frumvarpsins og rétt tæplega 60% þeirra sögðust vera andsnúin frumvarpinu. Fréttablaðið kunngerir aftur á móti að 77% þjóðarinnar séu andsnúin því!
Þetta kalla ég að afbaka staðreyndir. En gæði fréttamennskunnar hjá Fréttablaðinu almennt eru bara því miður ekki meiri en þetta. Ég bendi t.d. á fréttina um áhlaup lögreglunnar á fíkniefnabæli um daginn. Stebbi gerir gys að þeirri fréttamennsku en ég get ekki sagt annað en að ég hafi hugsað nákvæmlega það sama og Stebbi þegar ég las fréttina. Merkileg fréttamennska, ég segi nú ekki annað.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home