Sapere Aude!

29.3.04

Ákvörðunarhelvíti

Ég er farinn til helvítis, ákvörðunarhelvítis, og hér mun ég dúsa um alla eilífð og endalaust þurfa að velja á milli skóla. Ég er Sísýfos og þetta er hnullungurinn minn. Það er andskotanum erfiðara að velja á milli Cornell og Princeton. Hvað hef ég gert til að verðskulda þetta? Æi, já, ég sótti víst um. Mea culpa! Gott á mig, ég á þetta skilið. Á morgun skal ég hafa tekið ákvörðun. Annars má ég hundur heita.

Ég get samt glatt mig við það að hafa loksins ruslað þessari fjárans Thor Thors styrkumsókn af. Þá er það búið og gert. Quod scripsi, scripsi!

Að lokum legg ég til að Elko verði lagt í rúst! Þeir hafa stækkað andskotans Elkóblaðið aftur. Censeo vere Elkinem delendam esse!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home