Skattaskýrslan
Ansi er ég feginn því að vera loksins búinn með skattaskýrsluna mína. Ég veit fátt leiðinlegra en að telja fram. Það væri þá kannski helst að fara í fermingarveislur. Nú fer sú vertíð að nálgast. Verst þykir mér samt að öll bókakaupin á árinu séu ekki frádráttarbær hjá námsfólki. Ég varð nú samt að troða einhverri summu á skýrsluna. Ef ég væri sjálfstæður atvinnurekandi gæti ég dregið allan svona kostnað frá. Og er ekki nám vinna? En þetta breytir svo sem engu. Ég fæ sjálfsagt bara minn átta þúsund kall endurgreiddan í ágúst, eins og venjulega. C'est la vie!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home