Hegningar á Íslandi
Er þetta eðlilegt?
Maður nokkur fremur grófa líkamsárás og er dæmdur í tveggja ára fangelsi. Eftir einungis 10 mánuði er honum sleppt út. Hann fremur þá strax aðra grófa líkamsárás og er handtekinn. En einhverra hluta vegna er ekki hægt að hneppa manninn í gæsluvarðhald. Honum er þess vegna sleppt aftur. Og viti menn, fáeinum dögum síðar hefur hann framið aðra líkamsárás. Bíddu, með hvaða rökum var beiðninni um gæsluvarðhald vísað frá? Þótti hann ekki hættulegur samfélaginu? Ef hann hefði ráðist á mig væri mér skapi næst að höfða mál gegn héraðsdómara fyrir vanrækslu í starfi. Þessi maður á greinilega ekki að ganga laus. Hann er stórhættulegur. Af hverju er ekki hægt að loka svona fólk inni?
Og svo getur maður átt yfir höfði sér fimm ára fangelsisvist ef maður stelst til að reykja inni á salerni í flugvél! Í alvörunni, af hvorum stafar samfélaginu nú meiri og beinni hætta, þessum manni eða reykingarmanninum?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home