Sapere Aude!

3.4.04

Smáborgaraskapur

Mikið leiðist mér krakkar í límmósínum á rúntinum um bæinn, komin hálf út um gluggan og skríkjandi og kallandi á vegfarendur. Ég hef aldrei skilið þessa hegðun. Í fyrsta lagi skil ég ekki hvers vegna fólk er yfirleitt að taka á leigu limmósínur þegar það er að fara í eitthvað fínt boð eða á árshátíð eða hvert nú heldur. Er ekki nóg að taka bara leigubíl? Er það ekki alveg nógu fínt? Annar hver leigubíll er nú Mercedes Benz! En látum það vera. Hins vegar skil ég ekki hvers vegna fólk hefur sig til, fer í sín fínustu föt o.s.frv. - og svo á rúntinn í þessum glæsikerrum - til þess eins að haga sér eins og illa upp alin smábörn; eins og til að sýna öðrum svo ekki verði um villst að það sé í raun smáborgarar og sveitamenn. Ég bara næ þessu ekki. Fólk fer í sitt fínasta til að láta eins og skríll. Þetta er bara svo asnalegt. Og þetta er sennilega eina fólkið sem lætur aka sér um í þessum allt of löngu bílum hér á landi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home