Sálarró
...fékkst að einhverju leyti í morgun þegar ég tók endanlega ákvörðun um hvert ég ætla að flytja í haust. Raunar hafði ég tekið þessa ákvörðun rétt áður en ég fór að sofa í gær og svaf á henni. Svo var ég rólegur í morgun þegar ég vaknaði og sáttur við sjálfan mig. Þá er málið útrætt. Ég fer til Princeton. Á endanum ákvað ég nefnilega að ég vildi ekki búa úti í rassgati, en Ithaca er því miður "in the middle of nowhere" eins og Kaninn segir. Ég geri orð Gunnars á Hlíðarenda að mínum: "Fögur er hlíðin, ég fer ekki (út í) rassgat!"
Í morgun skrifaði ég svo afþökkunarbréf til hinna skólanna. Það var í raun ekki erfitt, enda hafði Corey Brennan hjá Rutgers sagt sjálfur við mig þegar ég heimsótti hann að ef ég kæmist inn í Harvard eða Princeton ætti ég bara að fara þangað. Ég þakka fyrir hreinskilnina. En svo kom að Cornell. Þá fyrst meinti ég orðin "I regret to inform you..." sem annars eru bara formlegheit og ekkert meir. Ég kunni nefnilega svo vel við Charles Brittain og mér fannst á honum eins og hann vildi virkilega fá mig til Cornell (ég hafði reynt að gera upp á milli skólanna á þessari forsendu en svo fann ég fyrir því sama frá Wildberg og Cooper). En öðlingurinn sá svaraði mér áðan og sagði mér að hafa samband við hann ef hlutirnir gengju ekki upp næsta árið. Maðurinn er ótrúlega indæll. Ég vona nú samt að ég þurfi ekki að hafa samband við hann vegna þessa.
Þetta er búið og gert. Audentes fortuna iuvat - Hamingjan styður hugprúða menn. Ég fer til Princeton.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home