Sapere Aude!

2.6.04

Málskotsréttur forseta

Varla hefur það farið framhjá mörgum að Ólafur Ragnar Grímsson hefur neitað að skrifa undir fjölmiðlalögin og ákveðið að láta reyna á málskotsrétt forseta. Ég var orðinn fullviss um að hann myndi skrifa undir, þótt ég hefði upphaflega haft ákveðnar efasemdir. En ég hafði greinilega á röngu að standa.

Mér finnst þetta svolítið glannaleg ákvörðun. Nú greinir fræðimenn á um hvort forsetinn hafi þetta vald. Einhver þarf að skera úr um það. Hve ætti það að vera? Hæstiréttur býst ég við, því dómstólar landsins túlka lögin (og þar með stjórnarskrána, býst ég við?) en ætli það þurfi þá ekki fyrst að kæra ákvörðunina? En bíðum við, forseti er ábyrgðarlaus; er hægt að kæra ákvörðunina? Það er kannski bara ekki hægt að fá úr þessu skorið. Óli glanni gæti verið búinn að koma af stað stjórnarfarskreppu, helvítis melurinn!

En spyrjum að leikslokum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home