Sapere Aude!

26.1.05

Lélegar vefsíður

Maður hefði haldið að árið 2005 sæju flestar verslanir sér ekki fært annað en að halda uppi þokkalegri vefsíðu. Af einhverjum ástæðum er vefsíða bóksölunnar þar sem ég er í skóla alltaf fáránlega léleg. Ég gat oft ekki fundið á vefsíðu Bóksölu stúdenta bækur sem ég vissi að væru til sölu í búðinni og síðan er líka allt annað en notendavæn. Hér er ég síðan í Princeton. Bóksalan hér, the Princeton University Store - eða bara the UStore - er að vísu miklu skárri þótt ég hafi raunar séð betra úrval. En vefsíðan þeirra er hryllingur, ljót og það sem verra er skelfilega ónotendavæn. Það er til dæmis ekki hægt að skoða dvd úrvalið hjá þeim á netinu þótt verslunin hafi skítsæmilegt úrval af dvd, kannski svipað eða betra úrval en fríhöfnin í Leifsstöð. Hvers vegna í fjandanum ætti ég ekki að geta fengið að sjá á vefsíðu þeirra hvort þeir selji tiltekinn disk og hvað hann kostar? Ég skil þetta ekki, en ég er ekki alveg sáttur við þetta. Lélegar vefsíður fara í taugarnar á mér.

3 Comments:

  • Ekki væla :)

    By Blogger Valla, at 11:53 e.h.  

  • Ó jú valgerður, þessu má sko væla yfir!! Ég er svooooooooo hjaaaaaartanlega sammála þér Geir! Það er alveg óþolandi þegar þjónustuaðilar af einhverju tagi eru með ömurlegar heimasíður. Nútíma maðurinn sem er alinn upp í stanslausu áreiti upplýsinga og veit að ef hann hefur kunnáttu til getur hann fengið að vita allt NÚNA!- þá bara gengur ekki að versla við þjónustuaðila sem gefa ekki upp upplýsingarnar strax. Þú leitar bara annað...og þar sem landamæri eru hætt að skipta eins miklu máli þá verður þetta að enn stærra vandamáli fyrir þjónustuaðila ef þeir eru ekki með heimasíður sem eru notanlegar!
    Jæja Geir, skjóttu nú niður rökin mín:)
    - Moi moi
    Freyja finnska

    By Anonymous Nafnlaus, at 2:23 e.h.  

  • Freyja, ekki væla

    By Blogger Valla, at 7:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home