Sapere Aude!

20.4.05

Hitnar í kolunum

Nú er aldeilis farið að hitna hér í New Jersey ríki og það sem verra er, rakinn farinn að verða meiri. Þetta er andstyggilegt. Ég sakna þess að ganga um í marrandi snjónum og vera kalt.

Ég sat drepleiðinlegan fyrirlestur í gær um íþróttamenn á aþenskum vösum. Fyrirlesarinn talaði með ýktasta breska hreim sem ég hef heyrt og ég efast um að þessi hreimur sé raunverulegur. Þá var fíflið ekki í samstæðum skóm. Mér líður illa ef ég er í ósamstæðum sokkum. Annar skórinn hans var eldrauður en ekki hinn. Dökk jakkaföt og einn eldrauður skór! Mig langaði að berja manninn.

4 Comments:

  • Hættu að nöldra kelling!

    By Blogger Valla, at 12:44 f.h.  

  • Í hvernig skóm var hann?
    Ég er sjaldnast í samstæðum Converse-skóm. Varla ætlarðu að lemja mig.
    Gunni

    By Anonymous Nafnlaus, at 1:28 e.h.  

  • Ég hef svo sem engin áform um að lemja þig, Gunni, en hver veit hvort ég ráði við mig ef ég sé þig í ósamstæðum skóm! :)

    Þessi maður var í hefðbundnum leðurskóm fyrir karlmenn nema hvað annar þeirra var eldrauður en ekki hinn.

    By Blogger Geir, at 9:46 e.h.  

  • Ég er alltaf í ósamstæðum sokkum og þú hefur aldrei lamið mig :D

    By Blogger Valla, at 12:24 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home