Sapere Aude!

2.3.05

Andleysi og fleira

Það er engu líkara en að fólk sé farið að tryllast hreinlega, nötri svefnvana og löðrandi í köldum svita líkt og fíkill með fráhvarfseinkenni, allt vegna þess að ég hef ekki nennt að deila með því hugleiðingum mínum hérna í rúman mánuð. Allt í lagi, þetta eru grófar ýkjur en það er a.m.k. kvartað undan því að maður hafi ekki bloggað lengi. Það er ágætt að vita til þess að manns sé saknað en tvennt kemur til þess að ég hef ekki bloggað lengi. Í fyrsta lagi hef ég varla haft tíma til að dunda mér við að blogga (já, ég veit, léleg afsökun) og í öðru lagi hef ég verið ósköp andlaus undanfarið og haft lítið að segja. En ég hlýt þó að gera það sem ég get til þess að draga úr vanlíðan þessa vesæla fólks sem örvæntir vegna bloggleysis míns, þó ekki sé nema með stuttri og tilgangslausri færslu um andskotann ekki neitt.

Gott og vel, látum okkur sjá, hvað skal nú segja? Jah, ég get svo sem sagt frá því að ég svaf yfir mig í morgun. Ég hlýt að vera að verða gamall, því ég virðist ekki ráða lengur við einungis þriggja tíma nætursvefn. Ég vaknaði og sá að klukkan var orðin 10, lokaði augun og hugsaði "Fokk! Ég missti af Virgils-málstofunni". Síðan opnaði ég augun aftur og sá að klukkan var orðin 11. Það góða er að ég var þeim mun ferskari í málstofunni um grískar mállýskur - sem er mjög áhugaverð og skemmtileg málstofa. Þessa vikuna erum við að lesa kýpverskar áletranir en kýpverska er skrifuð með mjög funky stafrófi sem er komið af línuletri A og lítur út eins og einhvers konar geimveruletur (sbr. ritmál geimveranna í Predator kvikmyndunum). Þá vitið þið það.

2 Comments:

  • og nú eru allir nötrandi að reyna kommenta ekki svo það fattist ekki að þeir eru fíklar ;) Gaman að þú bloggir aftur...var farin að hafa áhyggjur.

    By Blogger Valla, at 7:04 e.h.  

  • Já, ég er í málstofu í heimspekideild um sálfræði Platons og tengsl hennar við siðfræði hans. Ég er nokkuð ánægður með hana :)

    By Blogger Geir, at 6:18 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home