Farsi
Ég reikna með að það þurfi ekki mikinn spámann til að segja til um hvernig áramótaskaupið verður í ár. Það þarf eitthvað mikið að gerast seinna á árinu til þess að Bobby Fischer verði þar ekki í aðalhlutverki. Annars þarf varla að leika mikið, það nægir að taka bara sjónvarpsfréttirnar af Stöð 2 í gær og klippa þær inn á milli atriða. Þetta var sprenghlægilegt. Þarna stóð fréttakona inni á hótelherbergi og tilkynnti að hún væri inni á væntanlegu herbergi Fischers og það eina sem hann hafi sjálfur að segja við fréttamenn, vesalings maðurinn, var "Leave me alone!" Samt sáu fréttastofurnar ástæðu til að hafa sérstaka frétt um persónulegustu fyrirætlanir Fischers eins og til dæmis að hann ætlaði að raka sig. Er ekki kominn tími til að láta bara manninn í friði? Ég held það.


1 Comments:
Ég held það bara.
By
Arnþór L. Arnarson, at 1:17 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home