Heia Norge!
Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Ætli ég verði ekki að gera mér einhvern dagamun fyrst ég er hálfur Norðmaður? Ég held það.
Það er langt síðan ég hef fengist við einhverja rökfræði. Eiginlega ekki síðan í heimspekináminu í HÍ (og það var á síðustu öld!). Ég hálfpartinn sakna hennar. En ég þurfti að fletta upp nokkrum heitum á ensku um daginn og hef þess vegna verið að glugga í kennslubók í rökfræði undanfarið og rifja ýmislegt upp. Ég verð að segja að mér finnst bókin vera aðeins hnitmiðaðri og þægilegri en ónefndar og fremur óreiðukenndar íslenskar kennslubækur í þessum fræðum. Ég hef þess vegna verið að velta fyrir mér hvort ég ætti ekki bara að þýða bókina við tækifæri, kannski í sumar ef tóm gefst til þess. Hver veit, við sjáum til.
Talandi um rökfræði. Ég rakst á þetta stórskemmtilega veggjakrot á salerninu á barnum hérna á garði þar sem ég bý: (? x) (x = x) Cunt x. Svona má nú nota þetta fágaða tæki sem nútímarökfræði er til þess að tjá alls kyns skoðanir manns á veggjum salerna úti um allar jarðir. Já, rökfræðin er hagnýt.

7 Comments:
Til hamingju med daginn! Lifi Nordmenn!
By
Nafnlaus, at 8:35 f.h.
Norðmenn og rökfræðibækur!
Kannski hefur Camus rétt fyrir sér.
By
Nafnlaus, at 12:05 f.h.
Copi?
By
Nafnlaus, at 12:06 f.h.
Gunni annars
By
Nafnlaus, at 12:06 f.h.
Takk Alma :)
Einar: Bókin heitir því látlausa nafni Beginning Logic og er eftir E.J. Lemmon.
Gunni: Copi? Þú verður að afsaka hvað ég er tregur en ég skil ekki. Og þar sem ég hef lítið sem ekkert lesið Camus næ ég ekki heldur hvernig hann tengist Norðmönnum og rökfræðibókum...
By
Geir, at 11:23 f.h.
Hélt kannski að um væri að ræða rökfræðibók eftir Irving M. Copi en hann er víst mikið lesinn í Amríku.
Gunni
By
Nafnlaus, at 12:50 e.h.
Já, ég hef gluggað í þessa bók Lemmons. Ónefnd persóna tjáði mér að þessar ónefndu íslenzku kennslubækur, eftir ónefndan kennara við HÍ, sé einmitt byggðar á henni að miklu leyti.
En já, til hamingju með daginn!
By
E, at 9:02 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home