L'Islande douze points
Já, við Íslendingar sigruðum í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva; að minnsta kosti dreymi mig það í nótt. Og hvernig fórum við að því? Jú, við sendum Auðun Blöndal sem okkar fulltrúa og hann stóð uppi á sviði í einhverjum stiga fyrir ofan bar með fjólubláu ljósi og söng sig inn í hjörtu áhorfenda. Pétur og Sveppi voru ekki með sem dansarar á sviðinu, enda væri þá óhugsandi að við hefðum sigrað - meira að segja í steiktum draumi.
Já, draumar eru furðuleg fyrirbæri. En ég veit það ekki, kannski ættum við bara að senda strákana næst? Svei mér þá ef ég hef ekki heyrt verri hugmyndir.
Já, draumar eru furðuleg fyrirbæri. En ég veit það ekki, kannski ættum við bara að senda strákana næst? Svei mér þá ef ég hef ekki heyrt verri hugmyndir.


2 Comments:
Já þetta er þokkalega steikt! :D
Ég hef annars alltaf talið það til óumdeilanlegra mannkosta að dreyma steikta drauma. Góður!
By
Arnþór L. Arnarson, at 12:03 e.h.
Hmm...veit ekki alveg hvort mér líst á þetta....:)
By
Alma, at 6:51 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home