Svartur föstudagur
Í dag er Black Friday hér vestan hafs. Með því er átt við föstudaginn eftir Thanksgiving, sem er dagur innkaupa og almennrar sturlunar. Þá hefst jólaverslunin nefnilega fyrir alvöru með því að verslanir opna klukkan fimm að morgni og eru með útsölu annaðhvort til hádegis eða fram eftir kvöldi. Og af því að það er hægt að gera fantagóð kaup á þessum degi mætir fólk á svæðið enn fyrr og bíður við dyrnar. Við Valla komumst ekki í fyrra því þá vorum við á leiðinni til Boston en okkur langaði að sjá þetta verslunaræði og ákváðum því að skella okkur núna. Að sjálfsögðu komum við heim með alls kyns drasl sem okkur hefði ekki einu sinni dottið í hug að okkur "vantaði" ef við hefðum ekki farið. Klukkan hálf fimm var komin alllöng röð fyrir utan Sears en einhver geggjun virtist hafa gripið um sig fyrir utan Best Buy, CompUSA og Circuit City. Þar var örtröð engri lík enda hafði fólk beðið í röðinni þar frá því um átta leytið kvöldið áður. Við reyndum ekki einu sinni við þá staði, létum Quaker Bridge Mall nægja og entumst ekki lengi þar, heldur fórum við snemma heim í háttinn enda ósofin og þreytt. Valla er samt aðeins öflugari en ég í innkaupunum, því hún skellti sér aftur rétt í þessu; ætlar sjálfsagt að kaupa jólagjafirnar núna.
Við héldum annars Thanksgiving hátíðlegan eins og Íslendingum sæmir, með alíslensku lambalæri úr Whole Foods. Hvað með það þótt við kunnum ekki að elda kalkún með hefðbundinni fyllingu? Lambakjöt á diskinn minn!
Við héldum annars Thanksgiving hátíðlegan eins og Íslendingum sæmir, með alíslensku lambalæri úr Whole Foods. Hvað með það þótt við kunnum ekki að elda kalkún með hefðbundinni fyllingu? Lambakjöt á diskinn minn!


2 Comments:
speak for yourself, ég keypti næstum bara dót sem ég var búin að ákveða að kaupa og er núna búin með næstum alla stórfjölskylduna í jólagjöfum.
By
Valla, at 10:23 e.h.
eruð þið ekki að grínast - ég er mikið búin að gera grín að því fólki sem nennti að fara í búðirnar kl. 5 um morguninn, þetta er brjálæði ;)
By
Ragna, at 9:00 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home