Sapere Aude!

24.7.07

Mállýti

Ég og hinir meðlimirnir í vinahópnum og jafnvel nokkrir aðilar í viðbót ætlum sko að grípa til aðgerða um helgina, hittast og grilla og hafa það gott. Ég var einmitt að versla mér gasgrilllausnir á ódýru verði; var rosalega heppinn því ódýrustu verðin á gasgrilllausnum eru sko aldrei á sumartímanum. Nágranni minn ætlar að koma að málinu líka en aðkoma hans er að vísu í formi garðstólalausna handa mannskapnum. Það er að sjálfsögðu betra að geta boðið öllum aðilunum sæti...

Vonandi hafa flestir áttað sig á því að mér er ekki alvara með því sem ég skrifaði hér að ofan. Þessi texti er auðvitað saminn sérstaklega til þess að koma sem flestum mállýtum að í einni efnisgrein. Vitaskuld er þetta skopstæling á málfari fréttamanna. Meðlima- og aðilatalið tröllríður fjölmiðlum, aðgerða- og lausnatalið líka (skrifstofulausnir, hugbúnaðarlausnir - má þetta ekki bara heita skrifstofuhúsgögn og hugbúnaður?) og þar fram eftir götunum. Hver veit nema allir skrifi svona eftir hálfa öld. Það gildir einu, þetta er óþarft og ljótt. Elmar hefur ákveðið að helga eina af síðum sínum því að benda á það sem betur má fara í fréttum á mbl.is. Ég vildi að mér hefði dottið þetta í hug. Að vísu hefði ég gefist upp á þessu jafnóðum, því ég er latur að blogga. Það er líka nóg að "einn aðili komi að þessu", ég þarf ekki að herma. Ég læt nægja að vísa á síðuna hans Elmars og mæli eindregið með að fólk gefi því gaum sem hann hefur að segja.

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home