Heimkoma í sumar
Lítur út fyrir að ég komi heim í sumar, þrátt fyrir allt. Stoppa raunar stutt en vika er betra en ekki neitt. Ég er svo heppinn að fá að kenna aftur í háskóla ungafólksins í sumar. Það var býsna skemmtilegt í fyrra og ég hlakka því til að gera það aftur. Í ár bætist Rómarsaga við latínuna. Veltur vitaskuld á skráningu en ég býst við að einhverjir krakkalakkar hafi áhuga á að fræðast um sturlaða steggi á keisarastóli.
Kötturinn er farinn að sýna sitt rétta eðli. Og viti menn hann er hedónisti. Ég vissi það svo sem allan tímann.
Kötturinn er farinn að sýna sitt rétta eðli. Og viti menn hann er hedónisti. Ég vissi það svo sem allan tímann.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home