Þekkingarmiðlun
Ég var að komast að því að það er til íslenskt fyrirtæki sem heitir Platon.is í höfuðið á gríska heimspekingnum Platoni og er ráðgjafafyrirtæki "á sviði viðskiptagreindar". Á heimasíðunni kemur fram að fyrirtækið bjóði m.a. upp á þekkingarmiðlun. Þar er líka að finna stutta kynningu á Platoni sem á væntanlega að útskýra nafn fyrirtækisins. Í kynningunni stendur: "Í einu af hans þekktasta riti, Ríkinu, lýsir Platon því yfir að þekking sé ekkert annað en rökstudd skoðun og segir söguna af hellinum máli sínu til stuðnings". Já, ég skil, þeir taka sem sagt að sér að miðla "þekkingu" á hlutum sem þeir hafa ekki kynnt sér. Fyrirtak!
Það virðist raunar vera í tísku þessa dagana að rangtúlka Platon og eigna honum einhverja vitleysu og meira að segja hið lærðasta fólk tekur þátt í því.
Það virðist raunar vera í tísku þessa dagana að rangtúlka Platon og eigna honum einhverja vitleysu og meira að segja hið lærðasta fólk tekur þátt í því.


3 Comments:
Stendur heima!
En förum ekki nánar út í þá sálma!
By
E, at 3:32 e.h.
Ekki virðist þekkingarmiðlunin heldur hafa skilað sér út í íslenskukunnáttuna hjá þessu liði (nema þetta sé eins og þú segir, miðlun á einhverju sem þau kunna ekki).
Er það meðvituð ákvörðun hjá þér að gera fólki ókleift að fylgjast með uppfærslum á blogginu þínu öðruvísi en að skoða það samviskusamlega á hverjum degi? Mikið yrði ég glöð ef þú færir í "Settings", þaðan í "Site Feed" og stilltir svo "Publish Site Feed" á "Yes".
By
Eyja, at 12:24 f.h.
Já, Eyja, þetta var nú eiginlega meðvituð ákvörðun. En ég skal segja þér leyndarmál. Ég er svo latur að blogga að það er meira en nóg að kíkja annan hvern dag :)
Jú jú, ég get alveg breytt þessu.
By
Geir, at 2:43 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home