Sapere Aude!

30.6.07

Túristar í New York

Nú eru gestirnir farnir. Seinni hluta vikunnar vörðum við í New York þar sem við brugðum okkur í gervi túrista. Gistum á hóteli og fórum í túristaferðir um borgina bæði í rútum og á bát. Skelltum okkur líka á Broadway sýningu - sáum Spamalot, sem var alveg hreint ágæt skemmtun. Nú eru aftur á móti allir farnir og ég einn eftir með kisunni. Framundan er enn eitt sumarið - heitt og rakt - sem verður varið í lestur góðra bóka með tilheyrandi taugaveiklun um að ná ekki að lesa nema brotabrot af því sem ég hefði helst þurft að vera búinn að lesa í gær.

3 Comments:

  • Ekki væla og mundu bréfið sem ég hálfskrifaði!

    By Blogger Valla, at 2:54 f.h.  

  • Þetta reddast allt og svo geturðu vonandi lesið bestu bækurnar aftur seinna í minna stressi...

    By Anonymous Nafnlaus, at 12:07 e.h.  

  • Vertu svo ekki of góður við kisu svo hún taki nú Völlu aftur í sátt þegar hún kemur aftur...

    By Blogger Ragna, at 3:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home