Sapere Aude!

28.1.10

Glæsilegur árangur

Árangurinn hjá handboltastrákunum okkar á EM í Austurríki er alveg hreint glæsilegur. Leikurinn gegn Norðmönnum var frábær og þeir hafa nú þegar jafnað besta árangur Íslands á EM í hanbolta (Ísland var í 4ða sæti árið 2002 eftir tap gegn sænsku maskínunni í undanúrslitum og tap gegn Dönum í leik um bronsið). En ég held að núna geri þeir betur en árið 2002 (og séu jafnvel betra lið en 2002) og ég spái því strákunum verðlaunasæti. Nú er bara að bíða og sjá, næsti leikur er á laugardaginn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home