Kingda Ka
Fyrir þá sem ekki vita er Kingda Ka stærsti og hraðasti rússíbani í heimi. Það vill svo til að hann er ekki nema í 40 mínútna fjarlægð frá íbúðinni okkar hér í Princeton. Þegar við fórum í Six Flags í fyrra var tækið því miður lokað. En núna var það í notkun og sem betur fer var einhver með sem þorði í tækið, því annars hefði ég varla farið einn. Þetta er svakalegt tæki.Þetta er sem sagt rússíbani sem er 139 metra hár með 127 metra falli, fer á 206 km hraða og nær þeim hraða á 3,5 sekúndum.
Setjum þetta í samhengi. Hallgrímskirkja er 74,5 metrar á hæð; rússíbaninn nær sem sagt tæplega tvöfaldri hæð Hallgrímskrikju. Fallið frá topnum er svo 127 metrar eða eins og 1,8 Hallgrímskirkjur. Hraðinn: 206 km hraði er meiri hraði en ég hef nokkurn tímann ferðast á nema í flugvél, ég hef aldrei ekið svona hratt og flestar lestar fara miklum mun hægar, líka hraðlestar sem komast oftast nær hraðar frá A til B með því að stoppa á færri stöðum (það eru að vísu til háhraðalestar sem fara hraðar en ég hef ekki verið í slíkri lest). Hröðunin: 0-206 km/klst á þremur og hálfri sekúndu er býsna mikil hröðun. Til samanburðar má geta þess að Ferrari 458 fer frá 0 til 100 km/klst á 3,35 sekúndum og Lamborghini Murciélago fer frá 0 til 100 km/klst á 3,2 sekúndum.
Mæli með þessu tæki.


4 Comments:
gaman gaman - ég hef farið einu sinni, hefði viljað vera í þessum örfáu prósenta tilvika þegar maður fær að fara aftur því hann kemst ekki yfir hæðina :)
By
Ragna, at 11:28 e.h.
Eða eitt þessara fáu skipta þar sem hann rétt nær upp á en festist þar...
By
Geir, at 12:41 e.h.
Þið væruð góð saman í Six Flags, nú hef ég farið með ykkur báðum og þið eruð svipað fífldjörf ;)
By
Valla, at 11:46 e.h.
ég trúi samt ekki að þú hafir ekki þorað með Valla - Nitro er skelfilegri og þér fannst gaman í honum
By
Ragna, at 2:14 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home