Sapere Aude!

19.6.04

Ecce alumnus!

Æi, af hverju þarf ég að vera að útskrifast á eftir. Mig langar að vera áfram í Háskóla Íslands quae mihi alma mater est. Skyldi ég vera eini nemandinn sem brautskráist með trega? Jú, ætli það hrelli mig ekki bara einhver tómleikatilfinning eins og líka þá sem gátu ekki höndlað þá tilhugsun að árið 2000 gengi í garð; þakið er farið, víðáttan er framundan, svo langt sem augað eygir. Það er ekki alslæmt en ég þarf tíma til að venjast þessu. Audaces fortuna iuvat! Hugga mig við það.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home