Sapere Aude!

4.6.05

Heima er best

Ég hef varið síðustu dögum í að pakka og gera mig kláran til þess að koma heim í sumar. Hvernig í fjandans andskotanum fór ég að því að safna að mér svona miklu drasli? Það er engu líkara en að einhver hafi brotist inn til mín einhverja nóttina og komið fyrir fullt af bókum í herberginu mínu án þess að ég tæki eftir því.

Ég er farinn að hlakka mjög til að komast heim. Ef ég borða ekkert annað en fisk í tvær vikur verð ég sæll og glaður maður. Ég hef eiginlega ekki fengið góðan fisk hérna úti, ekki afbragðsgóðan alla vega og oftast bara vondan. Hráefnið skiptir öllu.

Ég er búinn að spá því að San Antonio mæti Miami í úrslitum NBA deildarinnar og stend við það. Það ætti að verða áhugaverð viðureign. Langt síðan ég hef fylgst jafngrannt með undanúrslitum NBA deildarinnar; einu sinni missti ég ekki af úrslitaleik og fylgist með þessu nánast í trúarlegum stellingum. Næsta ár ætla ég að reyna að komast á leik í Philadelphiu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home