Jólaáform
Í dag keypti ég miða heim um jólin, já eða að minnsta kosti frá Bandaríkjunum. Það lítur ekki út fyrir að ég komi aftur heim til Íslands fyrr en í fyrsta lagi næsta vor. Í ár held ég hins vegar jólin í Noregi. Ég held að þetta verði fyrstu jólin síðan 1978 sem ég held ekki á Íslandi og þar sem ég var of ungur til að muna eftir fyrstu jólunum mínum í Noregi árið sem ég fæddist, þá verður þetta ný reynsla fyrir mig. Það er nú alltaf gaman að upplifa eitthvað nýtt, ekki satt?
Það er búið að vera leiðinlegt veður í allan dag, rok og hellidemba (en samt er hlýtt og í raun bara peysuveður). Ég vona að þetta fari nú að skána.
Við Valla vorum boðin í mat hjá nokkrum öðrum stúdentum í gær og það er gaman að segja frá því að matarboðið jók á sjálfstraust okkar Valgerðar í eldhúsinu. Við erum bara alls ekki svo slæm eftir allt, þótt ég fyrir mitt leyti eigi enn margt ólært.

6 Comments:
Já
By
Valla, at 2:36 f.h.
Ég sérhæfi mig í örbylgjuréttum og þurrmat. ;)
By
Arnþór L. Arnarson, at 3:16 e.h.
Það er gott að sérhæfa sig í einhverju ;)
By
Geir, at 3:32 e.h.
Kommentið mitt fór nú eitthvað á mis þarna í gær. Vildi bara koma því á framfæri hvað það er mikill kostur í honum Geir. Strákurinn er jafnvígur í eldhúsinu, uppvaskinu og rúminu. Vonandi fer þetta ekki fyrir brjóstið á neinum.
By
Valla, at 4:17 f.h.
Geir er hrein andleg vera fyrir utan analytíska heimspekihárið. Ég sagði þetta einungis til að skemmta sjálfri mér og hrella aðra. Hreinar andlegar verur hafa jú löngum laðað að sér óþroskaðar ungsálir og hyggst ég nýta mér það til varnaðar.
By
Valla, at 6:33 e.h.
Ég er hrein efnisleg vera, Gunni minn.
By
Geir, at 6:37 e.h.
Skrifa ummæli
<< Home