Grískuþekking guðfræðinganna
Umræðan um nýju biblíuþýðinguna undanfarið undirstrikar mikilvægi þess að guðfræðinemar læri grísku. Í kvöld var viðtal við séra Geir Waage og séra Hjört Magna Jóhannesson í Kastljósi. Geir hélt því fram að þýðingarvilla væri í nýju útgáfunni af því að þar er orðið monogenes þýtt "einkasonur" frekar en "eingetinn", líkt og orðið gæti bara ekki þýtt "einkasonur". Hjörtur Magni leiðrétti hann ekki. Þeir hefðu báðir vitað að þetta er tóm vitleysa ef þeir hefðu lesið Hesíódos (Verk og daga 376, Goðakyn 426), Heródótos (VII.221) og Platon (Tímajos 31B). Orðið þýðir fyrst og fremst "einkasonur" eða "einkabarn", "einstakur", "einn sinnar tegundar". Ef það þýðir "eingetinn", þá er það bara í Jóhannesarguðspjalli.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home