Sapere Aude!

20.5.10

Fyndnasta frétt áratugarins

Í dag birtist frétt á Pressunni.is. Þetta er vísindafrétt. Því miður var blaðamaðurinn algerlega glórulaus um þau vísindi sem fréttin fjallaði. Afleiðingin er fyndnasta frétt áratugarins.

Fréttin heitir Hið ótrúlega gerðist: Fullnæging búin til á rannsóknarstofu, hægt að gægjast í eigin örlög og þar kemur meðal annars fram að "vísindamenn hafa breytt líflausum efnum í lifandi fullnægingu". Einmitt það, já. Ekki bara urðu lífvana efni að lífveru (organism) á tilraunastofunni, þau urðu að fullnægingu (orgasm).

Blaðamanninum datt greinilega aldrei í hug að spyrja sig "Er þetta nú örugglega rétt? Hvernig virkar þetta? Er ég viss um að ég skilji sjálfur það sem segir í fréttinni?"

Svei mér þá ef stúdentablaðið hérna er ekki bara vandaðra fréttablað en meira og minna allar fréttaveiturnar á Íslandi.

Viðbót:
Nú er búið að laga textann í greininni (af hverju var greinin ekki lesin yfir áður en hún var birt?) en það má enn sjá mistökin í vefslóðinni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home