Ísland í nýju ljósi
Ég fór í bíó í dag og varð gáttaður þegar ljósin kviknuðu skyndilega í miðri mynd: Það var sem sagt komið "hlé". Um daginn var ég jafn undrandi á þessu "hléi" sem varð á myndinni. Og það rann upp fyrir mér að eftir að hafa búið erlendis í þó ekki nema sex ár mun ég sennilega aldrei sjá Ísland sömu augum og áður. Fannst mér ekki sjálfsagt hér áður fyrr að það væri gert hlé á kvikmyndasýningum? Ég held það en mér finnst það ekki lengur, finnst það bara pirrandi núna enda öðru vanur.
...ég er sem sagt fluttur heim núna, að mestu leyti alla vega; hluti af mér er enn þá úti um sinn (betri helmingurinn).
Kannski ætti ég bara að gera bloggsíðuna að menningarsjokksbloggi...
...ég er sem sagt fluttur heim núna, að mestu leyti alla vega; hluti af mér er enn þá úti um sinn (betri helmingurinn).
Kannski ætti ég bara að gera bloggsíðuna að menningarsjokksbloggi...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home