Sapere Aude!

25.6.04

Eiga þeir sem falla að komast inn?

Það eru ekki góðar horfur í menntamálum þessa daga. Ef ekki tekst að fá aukafjárveitingu fyrir framhaldsskólana lítur út fyrir að mörghundruð ungmenni komist ekki að í skólunum í haust. Skiljanlega hefur fólk áhyggjur af þessu. Ég sá aftur á móti nokkuð undarlega frétt tengda þessu á Stöð 2 í kvöld. Þar var viðtal við mann sem ætlaði að kæra menntamálaráðuneytið, og gott ef ekki Hafnarfjarðarbæ og Flensborgarskólann líka ef sonur hans kæmist ekki inn í skólann. Manni þessum fannst gjörsamlega út í hött að sonur hans, sem hefur prýðilegar "einkannir" (svo!), skuli ekki fá skólavist einungis vegna þess að hann féll í stærðfræði!

Ég get skilið áhyggjur föðurins en ég átta mig samt sem áður ekki alveg á þessu viðhorfi hans. Strákurinn féll. Auðvitað kemst hann ekki inn úr því hann féll. Ég held að það sé engan veginn ósanngjarnt að ætlast til þess að þeir sem standast ekki próf komist ekki inn (einkum og sér í lagi þegar aðsókn er mikil); rétt eins og það er eðlilegt að þeir sem ekki hafa lokið stúdentsprófi eiga ekki að komast inn í Háskólann. Það er eðlilegt skilyrði fyrir inngöngu (og þótt að auki væri gerð krafa um II. einkunn).

Hér er vandinn við íslenskt skólakerfi: Það vantar allan aga. Agaleysi stafar m.a. af því að menn eru ekki látnir axla ábyrgð á gjörðum sínum. Svona birtist það oft í skólunum: Það er sama hversu oft krakki fellur á prófi, hann getur verið fullviss um að næsta haust verði hann einum bekk ofar í skólakerfinu við hlið félaga síns sem féll ekki. Með öðrum orðum kemst krakkinn áfram sama hve lítið hann leggur á sig og sama hve illa honum gengur. Og nú er sem sagt farið fram á það að skólarnir megi ekki hafna umsóknum þeirra sem falla, að það megi ekki gera þá kröfu að umsækjendur hafi staðist samræmdu prófin. Þetta er ekki eðlilegt.

Ég held að drengurinn verði bara að axla ábyrgð á falli sínu, taka upp áfangann og reyna aftur næsta haust (eða um jólin ef það er hægt); en faðir hans ætti að róa sig örlítið. Það er ekki nema eðlilegt að þeir gangi fyrir sem standast prófin.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home