Heilræði handa umsækjendum
Það má til sanns vegar færa að ég hef lært ýmislegt um hvernig eigi að sækja um að komast í framhaldsnám í Bandaríkjunum síðastliðið árið. Fyrir um það bil ári síðan hóf ég að búa mig undir að sækja um að komast í doktorsnám í klassískum fræðum og heimspeki. Þetta ferli tók tæpt hálft ár eða allt til áramóta. Þá, eftir stutta bið, bárust einhver svör og nýtt ferli tók við: að velja mér skóla. Að því loknu hef ég verið upptekinn m.a. af ýmsu sem þarf að gera áður en maður fer út.
Ættmenn, vinir og kunningjar sem og kennarar hafa auðvitað fengið að fylgjast með þessu öllu saman. En nú er svo komið að ég er oft spurður ráða af öðrum sem eru að fara að sækja um. Það gleður mig auðvitað að geta miðlað reynslu minni og orðið þannig einhverjum að liði. En það er svo margt sem þarf að hafa í huga og ég gleymi iðulega einhverju þegar ég er spurður.
Þá datt mér í hug að ég ætti kannski að punkta eitthvað niður. Núna í sumar hef ég t.d. verið að láta bólusetja mig við ýmsum sjúkdómum en skólarnir gera allir kröfu um að nýir nemendur séu bólusettir við tilteknum sjúkdómum. Það þarf oft fleiri skammta, tvo eða þrjá, og þá með minnst mánaðar millibili. En eyðublaðið sem maður fyllir út ásamt lækninum þarf að hafa borist þeim innan ákveðins tíma. Annars má maður búast við sekt. Og ég hugsaði með mér "Ég vildi að ég hefði vitað fyrr við hverju ég þyrfti að láta bólusetja mig, þá hefði ég getað klárað það fyrr, a.m.k. að einhverju leyti." - Það fyndna er að ég átti að vita þetta þar sem ég hef áður þurft að láta bólusetja mig til að geta farið til Bandaríkjanna. Það var þegar ég fór í sumarnám í latínu við Virginíu háskóla.
En ég sló til og ákvað að punkta niður helstu atriði sem mér finnst að hafa ætti í huga. Þessir punktar breyttust fljótt í langa ritgerð: ábendingar um praktísk atriði í bland við ýmis heilræði sem byggja á minni eigin reynslu af því að sækja um í framhaldsnám og hugleiðingar um hvernig best sé að bera sig að. En ég ákvað að skella þessu bara á netið ef það skyldi nú vera að þetta gagnaðist einhverjum. Kannski líka vegna þess að ég er ekki viss um að ráðleggingar af þessu tagi séu allar auðfundnar. Svo að hér er þetta. Og ef þetta kemur einhverjum að góðum notum væri gaman að heyra frá þeim manni.

1 Comments:
Þessi síða er mikið þing, kærar þakkir fyrir að hafa tekið þetta saman! :)
Arndís Dúnja, vinkona Páls Heimissonar og fyrrum skólasystir Völlu.
By
Nafnlaus, at 2:32 f.h.
Skrifa ummæli
<< Home