Krítarferð
Jæja, þá er maður kominn heim úr fríi á Krít, hvítur sem næpa að venju. Að þessu sinni dvaldi ég á hinu prýðilega hóteli Palazzo Porto Platanias, sem er við smábátahöfnina í smábænum Platanias á vesturhluta eyjunnar, ekki langt frá þeim stað það sem ég dvaldi síðast á Santa Marina hótelinu við Agia Marina ströndina (smábátahöfnin í Platanias er við vesturenda strandarinnar). Við skoðuðum auðvitað Knossos (aftur, staðurinn er alltaf jafnmikilfenglegur), þar sem ég fékk ókeypis inn fyrir að vera fornfræðinemi. Að vísu eiga allir nemar innan Evrópubandalagsins að fá frítt inn og þótt Ísland sé ekki aðildarríki þá fylgir það víst EES samningnum að Íslendingar njóti allra réttinda til jafns við íbúa aðildarríkja Evrópubandalagsins. Þá skoðuðum við Kournas vatnið sem er eina stöðuvatnið á Krít, Samaríagilið, sem er víst stærsta gljúfur Evrópu, og skelltum okkur í vatnagarðinn Limnoupolis svo fátt eitt sé nefnt. Við sáum líka geit uppi í tré (!), hjörð af eltikindum og upplifðum fagnaðarlætin eftir að Grikkir unnu EM í knattspyrnu. Fagnaðarlætin voru að vísu ekki minni eftir að Grikkir unnu Tékka og ljóst var að þeir kæmust í úrslitin. Örfáum mínútum síðar var hver einasti Grikki kominn út á götu, hrópandi og kallandi og hver einasti bílstjóri ók um með aðra hönd á flautunni - rútubílstjórar og leigubílstjórar, ungt fólk jafnt sem gamalt fólk, já, gjörsamlega hver einasti maður var viti sínu fjær. Og svona hélt þetta áfram fram eftir morgni.
Já, það er nú alltaf gaman að koma til Krítar. Ég kom fyrst til Krítar eftir að ég útskrifaðist úr menntaskólanum. Þessi ferð var auvitað farin eftir að ég útskrifaðist úr háskólanum. Nú vona ég bara að ég þurfi ekki að bíða eftir enn einni útskrift til að geta farið aftur til Krítar (eða Grikklands).
Á leiðinni sá ég síðan í Mogganum að það stæði til að draga fjölmiðlalögin tilbaka. Eins og þetta er nú mikill farsi, þá held ég nú samt satt best að segja að það hafi verið langheppilegast að hætt hafi verið við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það hefði átt að vera búið að setja reglur um þjóðaratkvæðagreiðlur fyrir löngu síðan en það er erfitt að ræða yfirleitt um slíkar reglur af einhverri yfirvegun í skugga þeirra atburða sem hafa átt sér stað í stjórnmálum undanfarið og í þeim skotgrafahernaði sem ríkt hefur í kjölfarið. Ansi er ég nú samt hræddur um að tilgangurinn með því að draga lögin tilbaka sé ekkert sérstaklega göfugur; bara enn einn leikurinn í pólitískri refskák.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home